miðvikudagur, apríl 04, 2012

Stóllinn fyrir
Ég keypti mér þennan gamla 60´s tekk stól í fyrrasumar og er búin að vera á leiðnni með hann í bólstrun síðan. Fyrst var ég ekki viss um hvernig ég ætlaði að hafa hann á litinn og en líklegast mun ég bólstra hann í einhverjum fallegum grænum lit. En á meðan ég er ekki búin að ákveða mig þá ákvað ég að gera hann aðeins fallegri því áklæðið er ekki alveg fyrir minn smekk, grátt og laxableikt. En ég ákvað að prófa textílmálningu og dreif mig í að mála áklæðið. Ég ákvað að hafa hann bara hvítann í þessu prufuverkefni og er bara sátt við útkomuna. Ég fór tvær umferðir með málningunni á efnið og tók um það bil klukkustund í hvort skipti og svo þurfti efnið að fá að þorna yfir nótt svo þetta tók alls ekki langan tíma en breytingin er ótrúleg.  
            

Svo af því það eru páskar ætla ég að skella inn tveimur myndum af páskaskrauti, Bryndís Inga valdi þessa sætu fugla sem við notuðum til að skreyta greinar sem við náðum okkur í úti í garði. Orðið páskalegt hjá okkur! Síðan er ein mynd í lokin af páskasúkkulaðiköku sem við bökuðum um síðustu helgi, páskaleg og góð. Svo einfalt að setja bara smá af mini súkkulaði eggjum ofaná.