| Stóllinn fyrir |
Ég keypti mér þennan gamla 60´s tekk stól í fyrrasumar og er búin að vera á leiðnni með hann í bólstrun síðan. Fyrst var ég ekki viss um hvernig ég ætlaði að hafa hann á litinn og en líklegast mun ég bólstra hann í einhverjum fallegum grænum lit. En á meðan ég er ekki búin að ákveða mig þá ákvað ég að gera hann aðeins fallegri því áklæðið er ekki alveg fyrir minn smekk, grátt og laxableikt. En ég ákvað að prófa textílmálningu og dreif mig í að mála áklæðið. Ég ákvað að hafa hann bara hvítann í þessu prufuverkefni og er bara sátt við útkomuna. Ég fór tvær umferðir með málningunni á efnið og tók um það bil klukkustund í hvort skipti og svo þurfti efnið að fá að þorna yfir nótt svo þetta tók alls ekki langan tíma en breytingin er ótrúleg.
Svo af því það eru páskar ætla ég að skella inn tveimur myndum af páskaskrauti, Bryndís Inga valdi þessa sætu fugla sem við notuðum til að skreyta greinar sem við náðum okkur í úti í garði. Orðið páskalegt hjá okkur! Síðan er ein mynd í lokin af páskasúkkulaðiköku sem við bökuðum um síðustu helgi, páskaleg og góð. Svo einfalt að setja bara smá af mini súkkulaði eggjum ofaná.
4 ummæli:
Va fallegt allt!
Kveðja Guðrún
Þú ert svo mikill snillingur Bjargey mín..bakstur,heimili,börn...name it! Geggjaður stóllinn...hvernig datt þér í hug textílmálning? Geggjuð hugmynd, en hvernig er að sitja í honum..maður hefur það á tilfinningunni að það sé svona hart..þar sem málning harðnar þegar hún er þurr en þetta er væntanlega annað..heheh Snilldar síða hjá þér by the way..mun fylgjast með þér hér:)
knús í hús frá Norge!
Helga
Já það er alveg rétt hjá þér Helga að efnið verður hart þegar maður er búin að mála það með textílmálningu en það mýkist eitthvað með tímanum. Ég held að ég fái mér einhverja fallega gæru til að hafa í stólnum til að gera hann meira kósý en þetta er ekkert mál þegar maður er með svona lítinn stól sem er frekar lítið notaður, ég myndi aldrei gera þetta við sófa :) Hugmyndin varð bara til þegar ég ákvað að gera eitthvað við stólinn án þess að eyða 30-40 þús í bólstrun. Textílmálningin fyrir allan stólinn kostaði ekki nema 5000 kr. svo þetta var ódýr breyting sem gerir mikið fyrir augað.

Skrifa ummæli