miðvikudagur, október 12, 2011

Ég er ekkert hætt.....bara búið að vera crazy mikið að gera. En nú fer ég á fullt og geri einhver skemmtileg blogg og fer á flakk með myndavélina :)

Síðan síðast hef ég verið að bralla hitt og þetta hérna heima. Ég er loksins búin að gera eitthvað við vegginn á ganginum og urðu myndahillurnar úr Ikea fyrir valinu þar og ég er bara mjög sátt með útkomuna.


Rammarnir eru úr Pier, Söstrene Grene og Ikea














Síðan tók ég smá make-over verkefni hérna heima, forstofan okkar var alltaf svo troðin af fötum, skóm, hjálmum og öðru dóti sem fylgir fjölskyldu með 3 börn svo ég ákvað að breyta "drasl skápnum" í eitthvað sem nýtist betur.

Svona var skápurinn fyrir breytingar:




Ég var með harðduglegan aðstoðarmann við verkið :) Við færðum grindurnar upp þannig að auðveldara sé fyrir krakkana að hengja upp fötin og ganga frá inn í skápinn. Og þvílíkur munur! Plássið nýtist mun betur og ég fékk forstofuna mína aftur :)




Og svo smá dúllerí í lokin


Fékk mér þetta æðislega fiskabúr í Habitat, heitir FishHotel og er ferkantað með gluggum fyrir fiskana að sjá út. Ferlega skemmtilegt!

laugardagur, júlí 02, 2011

Innlit hjá Hár Expo



Ég kom við í dag á hárgreiðslustofunni Hár Expo á horni Laugavegi og Frakkastígs. Andrúmsloftið var virkilega skemmtilegt en þrjár glæsilegar brúðir voru í hárgreiðslu og förðun þar í dag og starfsfólkið því á þönum að greiða, farða og aðstoða við að leggja lokahönd á útlit brúðanna.


Stofan er fallega innréttuð og andrúmsloftið lifandi. Stíllinn er módern og glamúr og blandast einstaklega vel saman innan um allar flottu vörurnar sem í boði eru.

Stofnandi og eigandi Hár Expo er Ágústa Hreinsdóttir hársnyrtimeistari sem hefur aðallega starfað við hárgreiðslu í Californiu hjá Sebastian og Toni & Guy. Gústa eins og hún er kölluð hefur innréttað stofuna eftir eigin höfði enda mikill fagurkeri og áhugakona um hönnun og skeytingar.





Snyrtingin er hlýleg og smart
Það er algjört dekur að koma í litun og klippingu eða hárgreiðslu á stofunni, ég þekki það af eigin raun. Starfsfólkið er faglegt og hugmyndaríkt og hárið fær yndislega uppliftingu eftir hverja heimsókn.

Kaffibarinn er alltaf opinn og nýjustu blöðin bíða eftir manni.



Ég þakka Gústu kærlega fyrir að leyfa mér að mynda hjá henni og deila með ykkur. Ef ykkur langar að skoða meira er heimasíða stofunnar http://harexpo.is 


Á efri hæð stofunnar er Expo Neglur þar sem naglafræðingur frá Snyrtiakademíunni starfar.
Bjart og stílhreint



fimmtudagur, júní 30, 2011

Evu snúðar

Ég ætla að deila með ykkur uppskrift af bestu kanilsnúðum í heimi. Eva frænka mín heitin kenndi mér að baka þessa snúða þegar ég var lítil og hafa þeir verið í miklu uppáhaldi hjá mér og mínum.

600 gr. hveiti
125 gr. sykur
125 gr. smjörlíki
5 tsk. þurrger
2 egg
3 tsk. kardimommudropar
3 dl. mjólk


Fylling er bráðið íslenskt smjör (ósaltað) og kanilsykur

Aðferð:
Blandið saman í hrærivélaskál öllu nema smjörlíkinu og mjólkinni. Bræðið smjörlíkið í potti og bætið mjólkinni saman við þannig að það verði ylvolg blanda. Hrærið rólega og hellið smjörlíkinu/mjólkinni saman við. Hnoðið svo kröftuglega í hrærivélinni í ca. 1 mínútu. Deigið verður frekar blautt og teygjanlegt, stráið hveiti yfir og leyfið að hefast í 45 mín.
Hnoðið svo uppúr hveiti og skiptið deiginu í 2 helminga. Fletjið annan helminginn út fyrst og bræðið smjörklípu sem þið hellið yfir deigið. Stráið vel af kanilsykri yfir og rúllið upp. Skerið svo í c.a. 12 bita og setjið á bökunarplötu. Bakið við 180 gráður í 15-20 mín.



Mjög gott að setja bráðið Nóa Rjómasúkkulaði á snúðana :)


Njótið vel!

sunnudagur, júní 26, 2011

Innlit í ævintýralegt stelpuherbergi

Berglind Edda er fjörug 2 ára stelpa og á þetta fallega herbergi.
Herbergið er hvítmálað og fallega skreytt með fiðrilda límmiðum sem hægt er að færa til ef maður vill breyta til. Límmiðarnir voru keyptir á Amazon.com.
Barbapabbi er í uppáhaldi og bangsarnir Barbapabbi og Barbamamma eru úr leikfangaversluninni Toys'R'Us. Barbapabba rúmfötin eru úr Rúmfatalagernum.







 



Hillan undir leikföngin er úr Ikea ásamt vegghillunni og fallega kúluljósinu. Búið að er bæta við skúffum í leikfangahilluna en þær fást í mörgum gerðum og litum í Ikea. Blómamottan er litrík og flott.


Lambið er bangsi sem heitir Sleep Sheep, en það gefur frá sér róandi hljóð sem hægt er að kveikja á þegar barnið er að fara sofa.



Fallega spiladósin er íslensk hönnun eftir Margréti Guðnadóttur.

Fallegir heimagerðir munir prýða herbergið hennar Berglindar Eddu.


Uglan er virkilega sæt og var keypt í London.


Hérna getur heimasætan eldað dýrindis máltíðir en þetta skemmtilega leikfangaeldhús fæst í Toy's R'Us. Bastkarfan hentar vel undir leikföng en svona körfur eru mjög sniðugar í barnaherbergi t.d. undir dúkkur og þeirra fylgihluti.

Einfaldur og fallegur stíll hjá henni Berglindi Eddu þar sem litir fá að njóta sín í annars stílhreinu umhverfi.
Litríkir og flottir snagar sem fást í Tiger

laugardagur, júní 25, 2011

Ég notaði málningarlímband til að búa til ferningana
Systurnar að hjálpa mömmu
Litríkt strákaherbergi

Ég er svo lánsöm að eiga tvær yndislegar dætur og hef aldeilis fengið útrás fyrir bleikt og annað dúllerí í þeirra herbergjum. En svakalega var gaman þegar sonurinn kom í heiminn að ákveða hvernig hans herbergi ætti að vera þar sem ég fengi að vinna með einhverja allt aðra liti og leikföng.

Ég fór í rauninni ekki af stað með neitt ákveðið þema en vildi að herbergið yrði litríkt og glaðlegt þar sem gaman væri að leika og slappa af. Á veggina vildi ég fá sterka og flotta liti og ákvað að prófa að nota bláan og grænan saman. Ég vildi þó ekki bara hafa einn vegg grænan og einn bláan og ákvað að láta litina mætast á miðri leið og úr varð þessi hugmynd með ferhyrningana á veggnum.

Rúmfötin eru frá Textíllistakonunni Hrönn
Bókahornið er afskaplega vinsælt hjá okkur, en bókahillan er mjög hentug fyrir krakka því þau sjá svo vel hvaða bækur eru í boði og svo er hún líka bara svo flott! Bókahillan er dönsk hönnun og er frá Oliver Furniture. Hægindastóllinn er ítalskur og heitir Rubelli en hann er úr hvítu leðri og var keyptur í Innlit húsgagnaverslun. Það er yndislegt að hafa svona stól í barnaherbergi þegar maður þarf að sinna litlu kríli á nóttunni eða vill eiga notalega stund saman fyrir svefninn. Síðan er ótrúlega gott fyrir mömmur að setja tærnar upp í loft og glugga í blað á meðan barnið er að leika sér í herberginu sínu því oft nægir það alveg að vera á sama stað og barnið til þess að fá stund fyrir sjálfan sig.


Ikea stendur alltaf fyrir sínu þegar kemur að því að innrétta barnaherbergi. Ég vildi hafa húsgögnin hvít svo ég gæti leikið mér með liti á veggjum, rúmfötum og svo eru leikföngin svo litrík að það er gaman að leyfa þeim að njóta sín. Rimlarúmið er keypt í Ikea ásamt Expedit hillunni sem hentar svo ótrúlega vel undir leikföng. Kommóðan er líka úr Ikea og er með djúpum og rúmgóðum skúffum fyrir öll fötin á herramanninn.

Barbapabbi og fjölskyldan hans eru í miklu uppáhaldi svo ég ákvað að setja nokkrar myndir af þeim í ramma og skreyta vegginn með þeim. Þetta eru bara ódýrir Ikea rammar og ég notaði Barbapabba bók sem var orðin vel þreytt af mikilli notkun og klippti út úr henni myndir.




föstudagur, júní 24, 2011


Hvíta stofan fékk grænt yfirbragð
Ég elska allt sem er hvítt. Og þegar ég elska eitthvað þá sé ég ekkert annað en það! Ég byrjaði að kaupa hvít húsgögn þegar við fluttum í íbúðina okkar fyrir 4 árum. Þegar við fluttum inn var ég ekki búin að ákveða neina sérstaka liti á veggina svo allt var hvítmálað. Síðan fór ég að skipta út litríku Ikea húsgögnunum okkar sem keypt voru á námsmannaárunum og allt í einu var allt orðið hvítt.....veggir og húsgögn og það var ekki alveg að virka svo ég dró fram litaspjaldið og fór að hugsa. Ég hef alltaf heillast af grænu því hann er svo hlýr og róandi og ég vildi skapa hlýlegt andrúmsloft í stofunni þar sem maður getur lagst í sófann og notið þess að slappa af eftir annasaman dag.

Sófinn er heitir Mezzo og er úr BoConsept. Við vorum mikið að hugsa um að fá okkur tungusófa en ákváðum svo að hafa lausan skemil í staðinn. Við sjáum ekki eftir því vegna þess að það er mjög þæginlegt að geta fært hann til eftir þörfum og við erum viljandi ekki með borð fyrir framan sófann og notum plötu ofaná skemilinn ef við erum með gesti og viljum geta borið fram veitingar í stofunni. Ég mun líklega einhverntímann fá mér flott "kaffiborð" en á meðan ég er með 3 lítil börn þá held ég að það muni bara safna dóti. Standlampinn er úr verslunni Egg sem er núna í Blómavali. Rammarnir á græna veggnum eru úr Ikea. Sjónvarpsskenkurinn er úr BoConsept. Hægindastóllinn er úr Innlit húsgagnaverslun og var sérstaklega keyptur þegar yngsti fjölskyldumeðlimurinn var nýfæddur og við færðum hann svo inn í hans herbergi því það er svo ótrúlega notalegt að hafa svona góðan stól þegar maður þarf að sinna ungabarni við brjóstagjöf og knús.

Ég vildi ekki hafa alla veggi græna og ákvað að hafa vegginn með glugganum hvítan og þá fær málverkið okkar Hreiðrið eftir myndlistamanninn Kára að njóta sín enn betur.


Veggfóðrið á litla veggnum sem skilur að stofu og eldhús er úr versluninni Laura Ashley og litla símaborðið er gamalt Ikea náttborð sem ég málaði í sama lit og stofuvegginn.

Við erum virkilega ánægð með útkomuna og það er ekkert betra en notaleg kvöldstund með fjölskyldunni í grænu stofunni.




Velkomin á nýju bloggsíðuna mína þar sem ég ætla að deila með ykkur allskonar skemmtilegum hugmyndum að hönnun, skreytingum og skipulagningu heimilisins. Ég ætla líka að deila uppskriftum og fleiru sniðugu svo endilega fylgist með :)