Hvíta stofan fékk grænt yfirbragð
Ég elska allt sem er hvítt. Og þegar ég elska eitthvað þá sé ég ekkert annað en það! Ég byrjaði að kaupa hvít húsgögn þegar við fluttum í íbúðina okkar fyrir 4 árum. Þegar við fluttum inn var ég ekki búin að ákveða neina sérstaka liti á veggina svo allt var hvítmálað. Síðan fór ég að skipta út litríku Ikea húsgögnunum okkar sem keypt voru á námsmannaárunum og allt í einu var allt orðið hvítt.....veggir og húsgögn og það var ekki alveg að virka svo ég dró fram litaspjaldið og fór að hugsa. Ég hef alltaf heillast af grænu því hann er svo hlýr og róandi og ég vildi skapa hlýlegt andrúmsloft í stofunni þar sem maður getur lagst í sófann og notið þess að slappa af eftir annasaman dag.

Sófinn er heitir Mezzo og er úr BoConsept. Við vorum mikið að hugsa um að fá okkur tungusófa en ákváðum svo að hafa lausan skemil í staðinn. Við sjáum ekki eftir því vegna þess að það er mjög þæginlegt að geta fært hann til eftir þörfum og við erum viljandi ekki með borð fyrir framan sófann og notum plötu ofaná skemilinn ef við erum með gesti og viljum geta borið fram veitingar í stofunni. Ég mun líklega einhverntímann fá mér flott "kaffiborð" en á meðan ég er með 3 lítil börn þá held ég að það muni bara safna dóti. Standlampinn er úr verslunni Egg sem er núna í Blómavali. Rammarnir á græna veggnum eru úr Ikea. Sjónvarpsskenkurinn er úr BoConsept. Hægindastóllinn er úr Innlit húsgagnaverslun og var sérstaklega keyptur þegar yngsti fjölskyldumeðlimurinn var nýfæddur og við færðum hann svo inn í hans herbergi því það er svo ótrúlega notalegt að hafa svona góðan stól þegar maður þarf að sinna ungabarni við brjóstagjöf og knús.
Ég vildi ekki hafa alla veggi græna og ákvað að hafa vegginn með glugganum hvítan og þá fær málverkið okkar Hreiðrið eftir myndlistamanninn Kára að njóta sín enn betur.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli