 |
| Ég notaði málningarlímband til að búa til ferningana |
 |
| Systurnar að hjálpa mömmu |
Litríkt strákaherbergi
Ég er svo lánsöm að eiga tvær yndislegar dætur og hef aldeilis fengið útrás fyrir bleikt og annað dúllerí í þeirra herbergjum. En svakalega var gaman þegar sonurinn kom í heiminn að ákveða hvernig hans herbergi ætti að vera þar sem ég fengi að vinna með einhverja allt aðra liti og leikföng.
Ég fór í ra

uninni ekki af stað með neitt ákveðið þema en vildi að herbergið yrði litríkt og glaðlegt þar sem gaman væri að leika og slappa af. Á veggina vildi ég fá sterka og flotta liti og ákvað að prófa að nota bláan og grænan saman. Ég vildi þó ekki bara hafa einn vegg grænan og einn bláan og ákvað að láta litina mætast á miðri leið og úr varð þessi hugmynd með ferhyrningana á veggnum.
 |
| Rúmfötin eru frá Textíllistakonunni Hrönn |
Bókahornið er afskaplega vinsælt hjá okkur, en bókahillan er mjög hentug fyrir krakka því þau sjá svo vel hvaða bækur eru í boði og svo er hún líka bara svo flott! Bókahillan er dönsk hönnun og er frá Oliver Furniture. Hægindastóllinn er ítalskur og heitir Rubelli en hann er úr hvítu leðri og var keyptur í Innlit húsgagnaverslun. Það er yndislegt að hafa svona stól í barnaherbergi þegar maður þarf að sinna litlu kríli á nóttunni eða vill eiga notalega stund saman fyrir svefninn. Síðan er ótrúlega gott fyrir mömmur að setja tærnar upp í loft og glugga í blað á meðan barnið er að leika sér í herberginu sínu því oft nægir það alveg að vera á sama stað og barnið til þess að fá stund fyrir sjálfan sig.

Ikea stendur alltaf fyrir sínu þegar kemur að því að innrétta barnaherbergi. Ég vildi hafa húsgögnin hvít svo ég gæti leikið mér með liti á veggjum, rúmfötum og svo eru leikföngin svo litrík að það er gaman að leyfa þeim að njóta sín. Rimlarúmið er keypt í Ikea ásamt Expedit hillunni sem hentar svo ótrúlega vel undir leikföng. Kommóðan er líka úr Ikea og er með djúpum og rúmgóðum skúffum fyrir öll fötin á herramanninn.

Barbapabbi og fjölskyldan hans eru í miklu uppáhaldi svo ég ákvað að setja nokkrar myndir af þeim í ramma og skreyta vegginn með þeim. Þetta eru bara ódýrir Ikea rammar og ég notaði Barbapabba bók sem var orðin vel þreytt af mikilli notkun og klippti út úr henni myndir.
1 ummæli:
Mjög svo flott hjá þér! Greinilegt að þú ert með auga fyrir þessu, gaman að fylgjast með. :)
Bestu kveðjur,
Ólöf Hugrún.
Skrifa ummæli