Ég ætla að deila með ykkur uppskrift af bestu kanilsnúðum í heimi. Eva frænka mín heitin kenndi mér að baka þessa snúða þegar ég var lítil og hafa þeir verið í miklu uppáhaldi hjá mér og mínum.
600 gr. hveiti
125 gr. sykur
125 gr. smjörlíki
5 tsk. þurrger
2 egg
3 tsk. kardimommudropar
3 dl. mjólk
Fylling er bráðið íslenskt smjör (ósaltað) og kanilsykur
Aðferð:
Blandið saman í hrærivélaskál öllu nema smjörlíkinu og mjólkinni. Bræðið smjörlíkið í potti og bætið mjólkinni saman við þannig að það verði ylvolg blanda. Hrærið rólega og hellið smjörlíkinu/mjólkinni saman við. Hnoðið svo kröftuglega í hrærivélinni í ca. 1 mínútu. Deigið verður frekar blautt og teygjanlegt, stráið hveiti yfir og leyfið að hefast í 45 mín.
Hnoðið svo uppúr hveiti og skiptið deiginu í 2 helminga. Fletjið annan helminginn út fyrst og bræðið smjörklípu sem þið hellið yfir deigið. Stráið vel af kanilsykri yfir og rúllið upp. Skerið svo í c.a. 12 bita og setjið á bökunarplötu. Bakið við 180 gráður í 15-20 mín.
| Mjög gott að setja bráðið Nóa Rjómasúkkulaði á snúðana :) |
Njótið vel!